Taylor Swift
Manage episode 402126795 series 2763209
Το περιεχόμενο παρέχεται από το RÚV. Όλο το περιεχόμενο podcast, συμπεριλαμβανομένων των επεισοδίων, των γραφικών και των περιγραφών podcast, μεταφορτώνεται και παρέχεται απευθείας από τον RÚV ή τον συνεργάτη της πλατφόρμας podcast. Εάν πιστεύετε ότι κάποιος χρησιμοποιεί το έργο σας που προστατεύεται από πνευματικά δικαιώματα χωρίς την άδειά σας, μπορείτε να ακολουθήσετε τη διαδικασία που περιγράφεται εδώ https://el.player.fm/legal.
Við höfum sagt skilið við viðskiptasiðferði enda geri ég ráð fyrir að við séum öll búin að líta rækilega í eigin barm og íhugað okkar eigin siðferði í leiðinni. Það er alltaf hollt, sérstaklega í byrjun nýs árs þar sem við erum umkringd eldgosum og snjóstormum. Hvað er þá betra en að kveikja á kerti og pæla aðeins í Taylor Swift? Hún var ein af manneskjum ársins hjá Time fyrir síðasta ár, er af mörgum talin vera ein stærsta, ekki bara poppstjarna, heldur manneskja heimsins sem við lifum í en hvað er svona sérstakt við hana? Hér er þó öðruvísi umfjöllun um Taylor Swift en við ættum kannski að venjast því við erum ekki að fara að hlusta á neina tónlist, heldur einungis velta henni fyrir okkur sem manneskju, sem fyrirbæri í sjálfri sér, eða phenomen eins og það myndi kallast á enskunni. Það er því ekki endilega krafa að þið séuð aðdáendur tónlistar hennar, þó auðvitað sé það bara bónus ef svo er. Til að segja okkur allt sem við þurfum að vita er mætt Ingunn Lára Kristjánsdóttir.
…
continue reading
118 επεισόδια