Sma Plass δημόσια
[search 0]
Περισσότερα
Download the App!
show episodes
 
Artwork

1
Smá pláss

RÚV

Unsubscribe
Unsubscribe
Μηνιαία
 
Smá pláss er feminíski áttaviti RÚV núll. Allt um óþægileg stefnumót, svikaraheilkennið og plássið sem má taka eða gefa eftir í almannarými. Smá pláss er á hverju miðvikudagskvöldi á RÚV núll streyminu klukkan 21 og stýrist af Elínu Elísabetu Einarsdóttur og Sunnu Axels.
  continue reading
 
Loading …
show series
 
Sunna og Elín elska jólin en hafa of oft orðið jólastressinu að bráð. Þær ræða um samviskubit, veganjól og pressuna sem fylgir oft jólunum um að allt þurfi að vera baðað fullkomnun og hamingju. Þetta er síðasti þátturinn í bili og því líta Sunna og Elín yfir farinn veg og rifja upp góðar stundir á Smá Pláss árinu sem er að líða.…
  continue reading
 
Sunna og Elín hafa setið tímunum saman á bar en hafa þrátt fyrir það aldrei gerst sekar um hatursorðræðu gagnvart samstarfsfólki sínu og minnihlutahópum. Sunna og Elín ræða um #klausturgate og viðbrögð þeirra sem komu að því máli. Þær ræða samsæriskenningar, kerfisbundna kvenfyrirlitningu, viðbrögð skeleggra kvenna við upptökunum og hvort þjóðkjörn…
  continue reading
 
Sunna and Elín live in Iceland, which is also home to just over 17,000 Polish immigrants. Anna Marjankowska, board member of the Efling trade union, joins Smá Pláss this week to talk about Polish women in Iceland, the issues they face, such as employment below their qualifications, and getting stuck in certain sectors of work. Sunna, Elín and Anna …
  continue reading
 
Sunna og Elín eru Íslendingar, en u.þ.b. 12% Íslendinga eru innflytjendur. Konur af erlendum uppruna eru oft í viðkvæmri stöðu, eins og sást á sögum þeirra í #metoo-byltingunni. Þessar konur hafa oft ekki stórt félagslegt bakland og verða gjarnan fyrir fordómum. Í þokkabót eru þær oft háðar ofbeldismönnum sínum um skjól og jafnvel dvalarleyfi á Ísl…
  continue reading
 
Sunna og Elín eru sískonur. Fólk sem er ekki sís býr margt hvert við fordóma og áreiti, og ekki síst misskilning. En samhliða því að sumstaðar sé mikið bakslag í réttindum hinsegin fólks er algengara og algengara að fólk vandi sig að kynja fólk rétt og venji sig á ný fornöfn. Íslenskan er smám saman að aðlagast með ýmsum nýyrðum (hýryrðum) og kynse…
  continue reading
 
Sunna og Elín hafa séð klám, enda er það svo aðgengilegt í dag að það er varla hægt að komast hjá því. Klám er farið að hafa stórtæk áhrif á ungt fólk, og þá sérstaklega stráka, sem alast upp með internetið við höndina og sjá klám jafnvel sem einu kynfræðsluna sem er í boði. Þetta hefur áhrif á tengslamyndun, sjálfsmynd og samskipti kynjanna. Þessi…
  continue reading
 
Sunna og Elín lenda stundum í fávitum. Fávitar eiga það til að senda fólki óumbeðnar typpamyndir, hótanir og svívirðingar á netinu. Kynferðisleg áreitni grasserar á samfélagsmiðlum og lítið virðist vera gert í því eins og er. Sólborg Guðbrandsdóttir, gestur þáttarins, heldur úti Instagram-reikningnum Fávitar, þar sem hún deilir skjáskotum af kynfer…
  continue reading
 
Sunna og Elín vilja eiga sjálfsákvörðunarrétt yfir sínum eigin líkama undantekningalaust. Það inniheldur réttinn til að taka ákvörðunina um að rjúfa þungun, sama hvað ástæður liggja þar að baki. Sunna og Elín ræða nýtt frumvarp um þungunarrof á Íslandi, viðmót samfélagsins, þungunarrof á grundvelli fæðingargalla og fólkið sem sér þungunarrof sem ba…
  continue reading
 
Sunna og Elín eiga engin börn. Þær hafa hins vegar heyrt alls konar hluti um hvernig það er að eiga börn og finnst móðurhlutverkið oft vera baðað óraunhæfum ljóma. Gert er ráð fyrir því að allar konur vilji og muni eignast börn og séu náttúrulega víraðar/hæfar til þess að vita hvernig á að fara að því, allt frá meðgöngu til uppeldis. Helga Dögg Óla…
  continue reading
 
Sunna og Elín fá stundum fullnægingar - stundum í einrúmi og stundum með öðrum. Sjálfsfróun er tabú, ekki síst fyrir konur, enda hefur kynhegðun kvenna löngum verið sett í skammarlegt samhengi. Sunna og Elín ræða titrara, píkur, viðhorf gagnvart sjálfsfróun í gegnum tíðina og allar mýturnar sem helvítið hann Freud setti fram um fullnægingar kvenna.…
  continue reading
 
Sunna og Elín eru með líkama og hafa frá byrjun fengið mjög skýr skilaboð frá samfélaginu um hvernig þeir eigi að líta út. Líkamar sem uppfylla ekki þessi skilyrði verða enn fyrir aðkasti og lýsingarorðið „feitur“ er hlaðið öðrum og verri merkingum. Gestur Sunnu og Elínar er Tara Margrét Vilhjálmsdóttir, formaður Samtaka um Líkamsvirðingu. Þær ræða…
  continue reading
 
Sunna og Elín verða varar við nauðgunarmenningu daglega. Hún er stórt vandamál á Íslandi sem og annarsstaðar. Nauðgunarmenning kristallast í því þegar konum er ekki trúað þegar þær segja frá, þegar þolendum er kennt um ofbeldið sem þau verða fyrir og þegar gert er lítið úr alvarleika kynferðisofbeldis. Þær ræða um Dr Christine Blasey Ford og Brett …
  continue reading
 
Sunna og Elín njóta ýmissa forréttinda. Þeirra femínismi á ekki við alla, t.d. eru fatlaðar konur með önnur forgangsatriði og sjónarhorn í sinni baráttu. Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir er gestur þáttarins að þessu sinni en hún hefur lagt ómælda vinnu í að fræða almenning um fötlunarfordóma og ableisma. Hún ræðir við Sunnu og Elínu um lífið í hjó…
  continue reading
 
Sunna og Elín fá allt önnur viðbrögð frá samfélaginu en karlar fyrir sömu hegðun. Tvískinnungar (e. double standards) leynast víða. Karlar mega eldast, konur eiga að halda sér í formi tvítugrar konu út ævina og lita á sér hárið þegar það gránar. Lauslátir karlmenn eru folar, konur sem haga sér eins eru druslur. Konur sem skipta um bleyjur á börnunu…
  continue reading
 
Sunna og Elín byrjuðu í menntaskóla fyrir 10 árum. Á þeim tíma var drusluskömmun daglegt brauð og að skilgreina sig sem femínista var félagslegt sjálfsmorð. Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar og kvenréttindabarátta fengið meira pláss í meginstreyminu. Beyoncé skilgreinir sig opinberlega sem femínista og fólk í framhaldsskólum í dag er mun …
  continue reading
 
Sunna og Elín hafa virkilega gaman af kynlífi eins og svo margir aðrir. Þær hafa lært margt á upp á eigin spýtur enda var kynfræðslan sem þær fengu á uppvaxtarárunum ekki upp á marga fiska. Aukin fræðsla um samþykki og líkamsstarfssemi kvenna hefði t.d. komið sér sérstaklega vel! Indíana Rós Ægisdóttir, mastersnemi í kynfræði, spjallar við þær um m…
  continue reading
 
Sunna og Elín eru hluti hins fjölmenna hóps kvenna sem hafa verið beittar ofbeldi af hálfu karla. Gerendur kynbundins ofbeldis eru ýmist fordæmdir eða fyrirgefið gjörsamlega af samfélaginu og eru jafnvel andlit fyrirtækja, tónlistarhátíða, kvikmynda og leikhúsa. Skuggalegir nauðgarar í húsasundum eru taldir hin verstu skrímsli en hvað með góðlega m…
  continue reading
 
Sunna og Elín búa í samfélagi sem verðlaunar átraskanir. Í þætti vikunnar ræða þær við Ölmu Mjöll Ólafsdóttur, sviðshöfund og listakonu, sem opnaði sig nýlega um baráttu sína við átröskun. Þær spjalla um útlit sem mælikvarða á virði kvenna, innri Gollum-röddina sem segir okkur að grennast, hollustu sem vopn og það hvernig samfélagið upphefur skaðle…
  continue reading
 
Sunna og Elín horfa stundum á bíómyndir og þætti. Þeim finnst samt alltaf eins og söguþræðirnir séu einsleitir og kvenpersónurnar ófrumlegar og einfaldaðar. Hvað ef fleiri konur gerðu bíómyndir? Elín og Sunna ræða Bechdel-prófið, nauðgunarmenningu sem rómantík, Reese Witherspoon og það hvernig James Bond er sama um samþykki. Movies by Her http://mo…
  continue reading
 
Sunna og Elín eru gagnkynhneigðar sískonur og njóta forréttinda sem slíkar. Þær hefur lengi langað að stækka sjónarhorn þáttarins og gestur þeirra að þessu sinni er Skaði Þórðardóttir. Þær ræða saman um lífið á hormónum, viðhorfsbreytingar gagnvart hinsegin fólki á síðustu 25 árunum eða svo, kynhegðun höfrunga og múrverk.…
  continue reading
 
Sunna og Elín eru ennþá að berjast fyrir réttindum kvenna - en af hverju? Er nokkuð eitthvað misrétti á Íslandi? Er jafnrétti ekki bara náð? Sunna og Elín taka fyrir grundvallaratriði femínisma í eitt skipti fyrir öll. Þær útskýra að launamunur kynjanna sé staðreynd, femínistar hati ekki alla karlmenn og það sé í raun langt í land hvað varðar kynja…
  continue reading
 
Sunna og Elín fara á túr einu sinni í mánuði og finnst það frekar glatað. Margar konur burðast með skömm hvað varðar blæðingar og hafa notað öll trixin í bókinni til að fela þær fyrir fólkinu í kringum sig. Elín og Sunna skila skömminni og ræða bleikan skatt, pillupásur, súkkulaði, ónýtar nærbuxur, kynlíf á túr og fleira.…
  continue reading
 
Sunna og Elín eru ekki nógu góðar EN hér er vara sem þær geta keypt til að verða betri, grennri og með lengri augnhár! Þáttur vikunnar er um auglýsingar og hvernig enginn getur staðist skilaboðin sem þær lauma inn i undirmeðvitundina daglega. Það nýjasta er að auglýsa allt sem valdeflandi í tilraun til að fá unga woke femínista til að kaupa dót og …
  continue reading
 
Sunna og Elín ákveða að taka léttara umræðuefni í kjölfar síðustu þátta sem fjölluðu um kynferðislegt ofbeldi og áreitni. Þær ákveða að ræða um skemmtilega hluti eins og hækkaða standarda, ástríðufullt samþykki og sænskt ljóðskáld, en nauðgunarmenningin er fljót að setja grátt ský yfir umræðuefnið. My Dad Wrote A Porno http://www.mydadwroteaporno.c…
  continue reading
 
Sunna og Elín fá til sín Huldu Hólmkelsdóttur sem leitaðist við að skilgreina stafrænt kynferðisofbeldi í BA-ritgerðinni sinni “Syndir holdsins“ árið 2016. Sunna, Elín og Hulda ræða um stafrænt kynferðislegt áreiti, nektarmyndir, dick-pics, gauramenningu og hvernig lögin í dag ná ekki utan um stafræna kynferðisofbeldið. Hulda segir þeim frá æskuvin…
  continue reading
 
Sunna og Elín hafa eins og svo margar aðrar konur verið áreittar kynferðislega ótal sinnum. Þrátt fyrir alla umræðuna sem hefur vaknað upp á síðkastið eru margir sem gera lítið úr slíkri áreitni, normalísera hana eða trúa einfaldlega ekki að hún sé til. Sunna og Elín segja frá ástarbréfum frá viðskiptavinum, „fyndnum“ yfirmönnum, götuáreiti og flei…
  continue reading
 
Sunna og Elín upplifa sig stundum sem svikara. Loddaralíðanin á það til að laumast upp að þeim eins og gremlins og telja þeim trú um að þær hafi komist áfram í lífinu óvart eða með svikum, en ekki á eigin verðleikum. Þrátt fyrir grillheila Elínar ræða þær um fimm mismunandi tegundir svikaraheilkennis, Arnold Schwarzenegger og að missa kúlið.…
  continue reading
 
Sunna og Elín mega taka smá pláss! Konum er frá unga aldri kennt að vera hljóðlátar, hlýðnar og til friðs og að gera helst aldrei mistök. Á meðan fá strákar að hafa hátt og taka áhættur. Það er ekki auðvelt að aflæra þessa hegðun en Sunna og Elín gera sitt besta, auk þess sem þær ræða launahækkanir, kraftpósur og bikinirassa í SMÁ PLÁSS vikunnar.…
  continue reading
 
Sunna og Elín spjalla við Þorstein V Einarsson, upphafsmann #karlmennskan-byltingarinnar, um skaðlega karlmennsku, samkennd, naglalakk og meint hlutverk kynjanna. Þorsteinn segir frá hvernig karlmennskan hefur haft áhrif á sig og hvernig hún getur þróast út í að hafa skaðleg áhrif. Hún hefur vald til að móta hegðun karlmanna á einsleitan hátt en á …
  continue reading
 
Sunnu og Elínu finnst eins og stundum sé ekki tekið mark á því sem þær segja. Hversu oft hafa þær lent í aðstæðum þar sem frásögn þeirra er dregin í efa? Hversu oft hafa þær komið með hugmynd upp á borðið en einhvernvegin virðast hún ekki komast til skila fyrr en karlmaður endurtekur eða tekur undir hana? Hversu algengt er að afskrifa skoðanir, frá…
  continue reading
 
Sunna Axels og Elín Elísabet eru með samviskubit. Samviskubitið er daglegt brauð, sama hvort það er yfir því að fara of seint að sofa, hafa of litla kynhvöt eða of mikla, vera með vesen, hafna fólki, gera of miklar kröfur, vera ekki nógu kvenleg, vera of kvenleg, segja eitthvað asnalegt, vera ekki nógu dugleg og auðvitað yfir því að tala út frá sjá…
  continue reading
 
Loading …

Οδηγός γρήγορης αναφοράς